Hoppa yfir valmynd
13. mars 2008 Matvælaráðuneytið

Nr. 13/2008 - Nefnd um markaðssetningu íslenska hestsins erlendis

Fréttatilkynning frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu

Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað nefnd um markaðssetningu íslenska hestsins erlendis. Nefndinni er ætlað að meta hvernig staðið er að kynningu íslenska hestsins, velta fyrir sér nýjum hugmyndum og leita leiða til að bæta árangur af úflutningsstarfinu. Jafnframt er nefndinni falið að skoða hvernig best megi nota hestinn í landkynningarstarfi og til að styrkja markaðssetningu íslenskra afurða og ferðaþjónustu erlendis.

Í nefndinni eru:

Ásta Möller alþingismaður, formaður
Freyja Hilmarsdóttir, tamningamaður, Votmúla í  Árnessýslu
Hulda Gústafsdóttir, tamningamaður, Árbakka í Landsveit
Kristinn Hugason deildarstjóri, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu
Magnea Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Íslenskra hestasýninga og húsfreyja á Varmalæk í Skagafirði
Pétur J. Eiríksson forstjóri í Reykjavík
Sveinbjörn Sveinbjörnsson lögmaður í Kópavogi.

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu

13. mars 2008



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum