Hoppa yfir valmynd
2. apríl 2008 Matvælaráðuneytið

Nr. 15/2008 - Árlegar viðræður Íslendinga og Færeyinga um fiskveiðisamning þjóðanna

EKG og Torbjorn Jacobsen sjávraðhr í Færeyjum apr 08
EKG og Torbjorn Jacobsen sjávraðhr í Færeyjum apr 08

Fréttatilkynning frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

Árlegar viðræður Íslendinga og Færeyinga um fiskveiðisamning þjóðanna

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Tórbjörn Jacobsen starfsbróðir hans í Færeyjum hittust í Þórshöfn í Færeyjum í dag til að ganga frá fiskveiðisamningi Íslendinga og Færeyinga.

Samkvæmt samningnum fá færeysk skip heimild til að veiða 30 þúsund lestir af loðnu við Ísland á loðnuvertíðinni 2008/2009 svo fremi að útgefinn kvóti verði a.m.k. 500 þúsund lestir. Sé gefinn út minni kvóti fá Færeyingar 5% í sinn hlut. Þá fá Færeyingar heimild til að frysta loðnu og vinna um borð og landa loðnu til manneldis erlendis. Mega þeir þannig frysta 2/3 kvótans en þó þannig að aldrei fari meira en 1/3 kvótans til manneldisvinnslu eftir 15. febrúar.

Samkomulag er um að þjóðirnar fái áfram að veiða kolmunna og norsk-íslenska síld innan lögsögu hvorrar annarrar. Hámarksfjöldi íslenskra skipa í færeysku lögsögunni hverju sinni við kolmunnaveiðar verður 12. Þegar mest sókn erlendra skipa er í færeyska lögsögu áskilja Færeyingar sér rétt, í samráði við íslensk stjórnvöld, til að takmarka fjölda skipanna enn frekar til að forðast öngþveiti á miðunum.

Botnfiskveiðiheimildir Færeyinga við Ísland verða óbreyttar á árinu 2008. Færeysk skip hafa því heimild til að veiða 5.600 lestir af botnfiski á árinu. Heildarafli þorsks verður þó aldrei meiri en 1.200 lestir og lúðuafli aldrei meiri en 45 lestir sem er um helmings skerðing milli ára .

Íslensk skip hafa heimild til að veiða 2.000 lestir af Hjaltlandssíld við Færeyjar og 1.300 lestir af makríl.

Þá var ákveðið að fulltrúar landanna hittist á vormánuðum til að ræða sérstaklega eftirlit með veiðum í lögsögum Íslands og Færeyja. Markmið með slíkum fundi er að fara yfir framkvæmd eftirlitsins, hvernig það megi bæta og tryggja enn betur samvinnu þeirra sem því sinna.

Auk þessa ræddu ráðherrarnir ýmis önnur sameiginleg hagsmunamál, m.a. samstarf innan alþjóðlegra stofnana og um nýtingu annarra sameiginlegra stofna en áður er getið.

Samningurinn verður formlega staðfestur með nótuskiptum milli utanríkisráðherra Íslands og lögmannsins í Færeyjum og í kjölfarið staðfestur af Alþingi.

EKG og Torbjorn Jacobsen sjávraðhr í Færeyjum apr 08 Tórbjörn Jacobsen sjávarútvegsráðherra Færeyja og Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherrraþ

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu

1. apríl 2008

 

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum