Hoppa yfir valmynd
7. apríl 2008 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skipun skattstjóra á Skattstofu Suðurlandsumdæmis

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 5/2008

Fjármálaráðherra hefur skipað Steinþór Haraldsson til að gegna embætti skattstjóra á Skattstofu Suðurlandsumdæmis frá 1. maí 2008 til fimm ára.

Steinþór lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1975. Að loknu námi réð hann sig til starfa hjá embætti ríkisskattstjóra þar sem hann hefur í gegnum árin m.a. gegnt stöðum sérfræðings, deildarstjóra, forstöðumanns um tíma og yfirlögfræðings. Steinþór var settur skattstjóri á Skattstofu Suðurlandsumdæmis í júní 2007 og hefur gegnt því starfi síðan. Steinþór hefur mikla þekkingu og reynslu af skattarétti og skattframkvæmd. Hann hefur auk þess átt þátt í fjölmörgum breytingum á skattkerfinu, sinnt kennslu og ritstörfum á sviði skattamála.

Alls bárust tvær umsóknir um starfið.


Fjármálaráðuneytinu, 7. apríl 2008

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum