Hoppa yfir valmynd
16. apríl 2008 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Foreldrahús fær nýtt húsnæði

Jóhanna Sigurðardóttir opnar ForeldrahúsFélags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, opnaði formlega nýtt Foreldrahús Vímulausrar æsku í gær. Nýja húsnæðið sem er í Borgartúni 6 er allt hið glæsilegasta og rúmar starfsemi samtakanna vel.

Í ávarpi ráðherra kom fram að mikil ánægja ríkti með farsælt og gott starf samtakanna. Það væri því mikið gleðiefni að húsnæðismál samtakanna væru komin í farsæla höfn og starfsemin gæti haldið áfram að blómstra, ungmennum og fjölskyldum þeirra til heilla.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum