Hoppa yfir valmynd
8. apríl 2009 Forsætisráðuneytið

Starfshópur skipaður til að semja siðareglur fyrir stjórnsýslu ríkisins

Forsætisráðherra hefur í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 17. mars skipað starfshóp sem ætlað er að semja drög að siðareglum fyrir ráðherra í ríkisstjórn Íslands. Ber hópnum að hafa hliðsjón af sambærilegum siðareglum sem settar hafa verið í nágrannalöndum Íslands sem og nýsamþykktum reglum forsætisnefndar Alþingis um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingismanna og trúnaðarstörfum utan þings.

Skal starfshópurinn jafnframt semja drög að siðareglum fyrir embættismenn og aðra starfsmenn stjórnsýslu ríkisins. Hópnum ber að vinna í samráði við stéttarfélög starfsmanna er starfa innan stjórnsýslu ríkisins og skal vinna hans m.a. byggja á viðmiðum um góða starfshætti ríkisstarfsmanna sem fjármálaráðuneytið gaf út 24. janúar 2006 og leiðbeiningum Evrópuráðsins og OECD um þetta efni.

Starfshópinn skipa:

  • Páll Þórhallsson, lögfræðingur í forsætisráðuneytinu, formaður.
  • Halldóra Friðjónsdóttir, sérfræðingur í fjármálaráðuneytinu.
  • Jón Ólafsson, prófessor og deildarforseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst.

Starfshópnum er ætlað að skila tillögum sínum til forsætisráðherra eigi síðar en 15. september nk.

Reykjavík 8. apríl 2009



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum