Ráðstefna um kyn og völd á Norðurlöndum 18. - 19. nóvember 2009
Norræna embættismannanefndin um jafnréttismál og norræna kvenna- og kynjarannsóknarstofnunin (NIKK) bjóða til ráðstefnu um kyn og völd á Norðurlöndum á Grand Hótel Reykjavík dagana 18. - 19. nóvember 2009. Ráðstefnan er öllum opin og er þátttaka ókeypis.
Á ráðstefnunni verða kynntar niðurstöður rannsóknarverkefnis um kyn og völd innan stjórnmála og atvinnulífs á Norðurlöndunum. Tuttugu fræðimenn frá öllum Norðurlöndunum hafa tekið þátt í verkefninu sem lýkur á þessu ári. Þar er sjónum m.a. beint að:
- Upplýsingum um hlut og áhrif kvenna og karla við ákvarðanatöku á sviði stjórnmála og innan atvinnulífsins á Norðurlöndunum fimm og sjálfsstjórnarsvæðunum þremur.
- Samanburði milli Norðurlandanna og samanburði milli stjórnmála og atvinnulífs.
- Umfjöllun um hvaða aðgerðir hafa skilað mestum árangri við að jafna hlut kynjanna í stjórnmálum og atvinnulífi.
Á ráðstefnunni í Reykjavík verður skýrsla hópsins rædd með þátttöku kvenna og karla sem hafa reynslu af stjórnmálum og atvinnulífinu.
Ráðstefnunni lýkur með pallborðsumræðum með þátttöku fólks úr stjórnmálum og atvinnulífi, auk fræðimanna.
- Skráning á ráðstefnuna er hafin og fer fram á vefsíðunni:
http://www.yourhost.is/genderandpower2009/registration.html
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna