Hoppa yfir valmynd
27. nóvember 2009 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á ostum frá Noregi

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á ostum frá Noregi.

Með vísan til 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og með vísan til reglugerðar dags. 26. nóvember 2009 er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á smurostum frá Noregi og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 31 desember  2010. 

 

 

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Úr tollskrárnr.:

 

 

kg

%

kr./kg

0406.3000

Smurostur

01.01.-31.12.10

13.000

0

0

 

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal láta hlutkesti ráða úthlutun tollkvóta vörunnar. Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar vegna innflutnings á landbúnaðarvörum nr. 509/2004.

Skriflegar umsóknir skulu berast til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 15:00 mánudaginn 7. desember nk.

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu,

27. nóvember 2009.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum