Hoppa yfir valmynd
29. janúar 2010 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Akstursgjald ríkisstarfsmanna - auglýsing nr. 1/2010

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:

Almennt gjald

  1. Fyrstu 10.000 km, kr. 99,00 pr. km
  2. Frá 10.000 til 20.000 km, kr. 89,10 pr. km
  3. Umfram 20.000 km, kr. 79,20 pr. km

Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.

Akstursgjald þetta gildir frá og með 1. febrúar 2010. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 5/2008 dagsett 26. september 2008.

Vakin er athygli á því að auglýsingar ferðakostnaðarnefndar eru birtar á vefsíðu fjármála­­ráðuneytisins. Þar er auk þess að finna reglur nefndarinnar um greiðslu dagpeninga erlendis og greinargerð um forsendur útreikninga akstursgjalds og dagpeninga.

Veffangið er: www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html

Reykjavík, 29. janúar 2010.

Ferðakostnaðarnefnd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum