Hoppa yfir valmynd
26. apríl 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra veitti Kvennaskólanum í Reykjavík viðurkenningu

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra veitti Kvennaskólanum í Reykjavík viðurkenningu sem Íþróttaskóli ársins 2010.
Ingibjörg S. Guðmundsdóttir skólameistari Kvennaskólans í Reykjavík, Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Ragnheiður Eyjólfsdóttir, formaður íþróttanefndar
Ingibjörg S. Guðmundsdóttir skólameistari Kvennaskólans í Reykjavík, Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Ragnheiður Eyjólfsdóttir, formaður íþróttanefndar

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra veitti miðvikudaginn 21. apríl Kvennaskólanum í Reykjavík viðurkenningu sem Íþróttaskóli ársins 2010. Þennan dag var haldið upp á peysufatadaginn í Kvennaskólanum og nemendur dönsuðu og sungu fyrir ráðherra fyrir utan Kvennaskólann í tilefni dagsins og verðlaunanna. Ragnheiður Eyjólfsdóttir, formaður íþróttanefndar og nemandi í 3. bekk, veitti eignabikar viðtöku fyrir hönd skólans. Kvennaskólinn sigraði í íþróttavakningu framhaldsskólanna með því að hljóta 316 stig eftir keppni í ýmsum íþróttagreinum og þátttöku nemenda í almennum hreyfistundum. Menntaskólinn á Laugarvatni, sem hafði titil að verja, lenti í öðru sæti með 286 stig og Verzlunarskóli Íslands hlaut 283 stig. Í ár tóku alls 10.000 nemendur frá 31 framhaldsskóla þátt í íþróttavakningunni sem fólst í keppni í blaki, futsal, körfuknattleik, sundi og frjálsum íþróttum auk þess sem nemendur tóku þátt í almennum hreyfistundum á vegum skólanna, s.s. ratleik, fjallgöngum, skautahlaupi, sundi, skíðagöngu, brennubolta, hlaupi ofl.

Íþróttavakningin er hluti forvarnarverkefna á vegum Heilsueflingar og forvarna í framhaldsskólum (HOFF) sem er samstarfsverkefni á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis, Lýðheilsustöðvar og tveggja félaga framhaldsskólanema, Sambands íslenskra framhaldsskólanema (SÍF) og Hagsmunaráðs íslenskra framhaldsskólanema (HÍF).



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum