Hoppa yfir valmynd
8. júní 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Kvikmyndasýning í tilefni Evrópuárs gegn fátækt og félagslegri einangrun

Í tilefni Evrópuárs gegn fátækt og félagslegri einangrun hefur stýrihópur Evrópuársins í samstarfi við Vesturport ákveðið að sýna myndina Börn eftir Ragnar Bragason í Iðnó þann 10. júní. Í myndinni er fjallað um nokkra einstaklinga sem allir glíma við tilvistarvanda. Karítas, einstæð móðir fjögurra barna, á erfitt með að láta enda ná saman og er á barmi örvæntingar. Guðmundur elsti sonur hennar hefur orðið fyrir einelti í skóla og er vinafár. Maríno, nágranni Karítasar, er misþroska geðklofasjúklingur sem býr hjá móður sinni. Hann hættir að taka geðlyfin sín þegar hann kemst að því að mamma hans fer á bak við hann með því að hitta ókunnan mann á laun.

Myndin hefur hlotið afburðadóma.

Nína Dögg Filiuppsdóttir, leikkona, mun flytja erindi fyrir myndina og einnig verða flutt erindi af einstaklingum sem af eigin raun hafa upplifað fátækt eða félagslega einangrun.

Húsið opnar kl. 19.30 og hefst dagskrá kl. 20.00.

Aðgangur er ókeypis og er sýningin öllum opin.

Auglýsing um sýningu myndarinnar

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum