Hoppa yfir valmynd
15. september 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 48/2010

 Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 15. september 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 48/2010.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 11. mars 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hafi á fundi sínum þann 8. mars 2010 fjallað um umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur frá 19. desember 2009. Fallist var á umsókn kæranda en réttur hennar til atvinnuleysisbóta var felldur niður í 40 daga í upphafi bótatímabils með vísan til 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, sbr. c-lið 3. gr. laganna, þar sem hún hætti í námi. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 19. mars 2010. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Samkvæmt vottorði Háskóla Íslands, dags. 21. desember 2009, var kærandi skráð stúdent við Háskóla Íslands háskólaárið 2009–2010. Hún var skráð í 18 ECTS einingar á haustmisseri 2009 og í 6 ECTS einingar á vormisseri 2010. Kærandi stundaði nám í B-fræði. Kærandi kveðst hafa hætt námi um áramótin 2009/2010 vegna fjárhagserfiðleika fjölskyldunnar. Vinna eiginmanns hennar hafi farið síminnkandi og hafi þau ákveðið að hún færi aftur út á vinnumarkaðinn. Kærandi kveðst ekki hafa vitað um 40 daga biðtímann þegar hún ákvað að hætta í námi. Hún sótti um atvinnuleysisbætur þann 19. desember 2009.

Vinnumálastofnun innti kæranda eftir því hvers vegna námi hafi verið hætt. Engar skýringar bárust frá henni og var henni með bréfi, dags. 22. febrúar 2010, tilkynnt sú ákvörðun Vinnumálastofnunar að réttur hennar til atvinnuleysisbóta yrði felldur niður í 40 daga. Þann 2. mars 2010 barst bréf frá kæranda þar sem farið var fram á að málið yrði tekið til meðferðar á ný og kærandi gerði jafnframt grein fyrir máli sínu. Það var mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda á því hvers vegna hún hafi hætt námi teldust ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og því var bótaréttur kæranda felldur niður í 40 daga, sbr. 1. mgr. 55. laganna.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar, dags. 26. ágúst 2010, er vitnað til 1. mgr. 55. laga um atvinnuleysistryggingar og bent á að í athugasemdum við umrædda grein frumvarps til laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að eðlilegt sé að þeir sem hætti námi án þess að hafa til þess gildar ástæður sæti sams konar biðtíma og þeir sem hætti störfum án gildra ástæðna, sbr. 54. gr. frumvarpsins. Orðalagið „gildar ástæður“ hafi verið skýrt þröngt sem hafi þýtt í raun og veru að fá tilvik falli þar undir. Skýringar þær er kærandi gefi fyrir því að hætta námi lúti aðallega að fjárhagsástæðum eins og fram komi í skýringarbréfi til Vinnumálastofnunar og í kæru til úrskurðarnefndar.

Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafa fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Veiti lögin þeim því fjárhagslegt úrræði og beri því að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum eða hætta námi sínu, um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að stunda nám. Vinnumálastofnun telji ljóst í máli kæranda að með því að hætta námi sínu hafi hún tekið ákvörðun um að vera skráð atvinnulaus hjá stofnuninni í stað þess að halda áfram námi sínu. Það hafi verið mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda á því hvers vegna hún hætti námi teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og sé bótaréttur hennar því felldur niður í 40 daga, sbr. 1. mgr. 55. gr. laganna.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 27. ágúst 2010, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 10. september 2010. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur hætt námi, sbr. c-lið 3. gr., án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Staðfesting frá viðkomandi skóla um að námi hafi verið hætt skal fylgja umsókninni.

Í athugasemdum við 55. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar segir að eðlilegra þyki að þeir sem hætta í námi án þess að hafa til þess gildar ástæður þurfi að sæta sams konar biðtíma og þeir sem hætti störfum án gildra ástæðna, sbr. 54. gr. frumvarpsins. Skipti þá ekki hvenær á námsönn hlutaðeigandi hætti námi. Gert sé ráð fyrir að vottorð frá hlutaðeigandi skóla um að hann hafi hætt námi fylgi umsókninni. Að öðru leyti er vísað til athugasemda við 54. gr. frumvarpsins. Þar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Niðurstaða máls kæranda veltur á þeirri forsendu að hún ákvað sjálf að hætta námi í Háskóla Íslands. Ástæður þess segir kærandi vera „fjárhagsástæður“. Fallist er á þá niðurstöðu Vinnumálastofnunar að ekki sé unnt að líta svo á að ástæður kæranda fyrir því að hætta námi teljist gildar ástæður. Er hin kærða ákvörðun því staðfest.

 

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 8. mars 2010 í máli A er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum