Hoppa yfir valmynd
26. maí 2011 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á blómum.

Með vísan til 65. gr. og 65. gr. A, laga nr. 99/1993 um framleiðslu verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum, með vísan til reglugerðar 895/2010, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutningsmagn blóma sem sótt skal um í stykkjatölu fyrir tímabilið 1. júlí – 31. desember 2011.

 

  Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
      stk. % kr./kg
Tollskrárnr.:

Blómstrandi plöntur með knúppum eða
blómum, þó ekki kaktusar

       
0602.9091

Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó
ekki þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni
Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna

01.07.-
31.12.11

   1.500

30 0
  Aðrar:        
0602.9093

Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki
þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea
og plönturnar Erica Gracilis og Calluna

 Lifandi:

01.07.-
31.12.11

   1.800

30 0
0603.1400 Tryggðablóm (Chrysanthemums) 01.07.-
31.12.11

    6.500

30 0
0603.1909 Annars (afskorin blóm) 01.07.-
31.12.11

118.750

30 0

 

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

 

Skriflegar umsóknir skulu berast til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 15:00, föstudaginn 3. júní 2011.

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu,

26. maí 2011.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum