Hoppa yfir valmynd
12. október 2011 Matvælaráðuneytið

Samið um kolmunna

kolmunni
kolmunni

 

Nr. 52/2011

Samið um kolmunna

kolmunniDagana 10. – 11. október var fundur strandríkja um stjórnun veiða úr kolmunnastofninum á árinu 2012 haldinn í Lundúnum. Samkomulag náðist um að heildarafli verði 391.000 tonn og er um að ræða töluverða aukningu frá árinu 2011 þegar heildaraflinn var ákveðinn 40.100 tonn. 

Ákvörðunin er samkvæmt ráðgjöf ICES og þeirri langtíma stjórnunaráætlun sem strandríkin samþykktu haustið 2008, en áætlunin er í samræmi við varúðarnálgun við stjórn fiskveiða að mati ICES. Þeirri langtíma stjórnunaráætlun er ætlað að tryggja sjálfbæra nýtingu stofnsins til lengri tíma.  

Íslenskum skipum verður því heimilt að veiða 63.477 tonn á árinu 2012 að frádregnum flutningi aflamarks á milli ára. 

Formaður íslensku sendinefndarinnar var Kristján Freyr Helgason frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu en auk hans var sendinefndin skipuð þeim Steinari Inga Matthíassyni frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, Ástu Guðmundsdóttur frá Hafrannsóknastofnuninni og Kristjáni Þórarinssyni frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum