Hoppa yfir valmynd
14. október 2011 Matvælaráðuneytið

Samið um norsk-íslenska síld

Undirrtun samnings No-Isl síld-2011
Undirrtun samnings No-Isl síld-2011

 Nr. 53/2011

 

Samið um norsk-íslenska síld

 Á fundi strandríkja um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum, sem lauk í Lundúnum í dag, náðist samkomulag um að heildarafli verði 833.000 tonn árið 2012.

Niðurstaða strandríkjanna er í fullu samræmi við vísindaráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) og þá langtíma stjórnunaráætlun sem sett hefur verið. Staða stofnsins er góð og stofninn hefur verið nýttur á sjálfbæran hátt undanfarin ár. Árgangar undanfarinna sex ára hafa þó verið minni en á tímabilinu 1998 til 2004 þegar sterkir árgangar komu inn í stofninn. Áður samþykkt stjórnunaráætlun og stofnstærðarmat ICES gefur heildarafla upp á 833.000 tonn en það er 16% lækkun milli ára.

Samkvæmt samkomulaginu verður íslenskum skipum heimilt að veiða 120.868 tonn á árinu 2012.

Formaður íslensku sendinefndarinnar var Kristján Freyr Helgason frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu en auk hans var sendinefndin skipuð þeim Þorsteini Sigurðssyni  frá Hafrannsóknastofnuninni og Kristjáni Þórarinssyni frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna.

 Undirrtun samnings No-Isl síld-2011

Á myndinni eru: Anna Shulayeva frá Rússlandi, Sigrún Holst frá Noregi, Kristján Freyr Helgason frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, Andras Kristiansen Færeyjum og John Spencer ESB.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum