Hoppa yfir valmynd
14. nóvember 2011 Matvælaráðuneytið

KEX Hostel hlaut nýsköpunarverðlaun SAF 2011

Á myndinn frá vinstri Árni Gunnarsson, formaður SAF, Pétur Hafliði Marteinsson, Ásberg Jónsson, Kristinn Vilbergsson og Katrín Júlíusdóttir, ráðherra ferðamála.
Á myndinn frá vinstri Árni Gunnarsson, formaður SAF, Pétur Hafliði Marteinsson, Ásberg Jónsson, Kristinn Vilbergsson og Katrín Júlíusdóttir, ráðherra ferðamála.

Nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar 2011 voru afhent á Hótel Reykjavík Natura 11. nóvember s.l. KEX Hostel hlaut verðlaunin að þessu sinni fyrir vandaða hönnun og útfærslu á grunnstoð allrar ferðaþjónustu sem er gistingin.

Í rökstuðningi dómnefndar segir að Kex Hostel bjóði gistingu á breiðum grunni og höfði til dæmigerðra farfugla með 16 manna herbergjum en jafnframt til þeirra sem vilja meira næði og jafnvel munað í tveggja manna hótelherbergjum.

Samræmd hönnun sem tekin er alla leið
"Þrátt fyrir þetta breiða framboð vekur sérstaka athygli hvernig eigendur hafa tekið samræmda hönnun rýmisins alla leið. Í hverjum krók og kima er sami andi og blær sem er
undirstaða þeirrar upplifunar sem Kex Hostel á að skila. Gæði í ferðaþjónustu byggja á upplifun og samræmi sé milli væntinga þar um og þegar á staðinn er komið. Í öllu kynningarefni og markaðsskilaboðum Kex Hostel kemur skýrt fram hvað þar er á ferðinni og þegar á staðinn er komið undirstrikar heildstæð hönnun og vel útfærð þjónustusamsetning það sem auglýst hefur verið. Þetta samræmi er til fyrirmyndar og undirstrikar gildi góðrar hönnunar til að tryggja gæði í íslenskri ferðaþjónustu. Kex Hostel hefur tekist þar einstaklega vel upp og þannig skapað sér hillu á markaði greinarinnar, sem enginn annar sat og laðar að jafnt erlenda gesti sem heimafólk," segir meðal annars.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum