Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2011 Matvælaráðuneytið

Kynningarfundir um land allt á Ísland - allt árið þróunarsjóði

Skaftafell
Skaftafell

Landsbankinn og iðnaðarráðuneytið hafa komið á fót þróunarsjóði til þess að styðja við átakið Ísland allt árið. Heildarframlag stofnenda sjóðsins á þessu ári og því næsta verður 70 milljónir króna.

Ísland allt árið er þriggja ára verkefni sem ætlað er að styðja við lengingu ferðamannatímabilsins á Íslandi. Landsbankinn og iðnaðarráðuneytið hafa komið á fót þróunarsjóði til þess að styðja við átakið meðal annars með því að auka hæfni fyrirtækja tengdum ferðaþjónustu til að skapa upplifanir utan hefðbundins ferðamannatíma.
Heildarframlag stofnenda sjóðsins á þessu ári og því næsta verður 70 milljónir króna.

Landsbankinn og Nýsköpunarmiðstöð og Ferðamálastofa f.h iðnaðarráðuneytis í samstarfi við aðra hagsmunaaðila halda opna kynningarfundi um land allt 21. til 24. nóvember næstkomandi. 

Dagskrá kynningarfunda:

Tími
12:30-13:30 á öllum stöðum

21. nóv – Egilsstaðir - Hótel Hérað

22. nóv – Akureyri– Borgir við Norðurslóð – anddyri

22. nóv – Akranes –Gamla kaupfélagið

23. nóv – Reykjavík –Grand Hótel

24. nóv – Selfoss –Hótel Selfoss

24. nóv – Ísafjörður- Þróunarsetur Vestfjarða

Við hvetjum alla til þess að mæta og kynna sér sjóðinn nánar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum