Hoppa yfir valmynd
16. janúar 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Dagsetningar samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk 2012

Í lögum um grunnskóla segir að samræmd könnunarpróf í íslensku og stærðfræði skuli lögð fyrir alla nemendur í 4. og 7. bekk grunnskóla. Jafnframt er kveðið á um að nemendur 10. bekkjar skuli á fyrri hluta skólaársins þreyta samræmd könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði.

Í lögum um grunnskóla nr. 91/2008 segir að samræmd könnunarpróf í íslensku og stærðfræði skuli lögð fyrir alla nemendur í 4. og 7. bekk grunnskóla. Jafnframt er kveðið á um að nemendur 10. bekkjar skuli á fyrri hluta skólaársins þreyta samræmd könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði.

Tilgangur samræmdra könnunarprófa í grunnskólum er m.a. að athuga að hvaða marki námsmarkmiðum aðalnámskrár í viðkomandi námsgrein eða námsþáttum hafi verið náð, vera leiðbeinandi um áherslur í kennslu fyrir einstaka nemendur og veita nemendum, foreldrum og skólum upplýsingar um námsárangur og námsstöðu nemenda.

Dagsetningar samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk haustið 2012 verða sem hér segir:


10. bekkur

Íslenska         mánudagur       17. september    
Enska             þriðjudagur       18. september    
Stærðfræði    miðvikudagur    19. september            

4. og 7. bekkur

Íslenska          fimmtudagur     20. september            
Stærðfræði     föstudagur         21. september            
        

Ákvörðun um prófdaga samræmdra könnunarprófa haustið 2012 var tekin í samráði við Námsmatsstofnun  sem sér um framkvæmd prófanna. Reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra könnunarprófa er aðgengileg á vef ráðuneytisins.
Samræmd könnunarpróf hefjast klukkan 9:00 að morgni. Próftími er breytilegur eftir aldri nemenda og má sjá ítarlegar upplýsingar um hann í kafla 2 í Samræmd könnunarpróf haustið 2012: Framkvæmd og uppbygging sem gefinn verður út á rafrænu formi í febrúar 2012, sjá nánar á vef Námsmatsstofnunar.


            

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum