Hoppa yfir valmynd
25. apríl 2012 Dómsmálaráðuneytið

Drög að breytingu á reglugerð um köfun til umsagnar

Til umsagnar eru nú hjá innanríkisráðuneytinu drög að reglugerð til breytinga á reglugerð um köfun nr. 535/2001. Umsagnafrestur um drögin er til 7. maí næstkomandi og skal senda umsagnir á netfangið [email protected].

Markmið reglugerðarinnar eru einkum að bæta öryggi ferðamanna með því að gera tilteknar kröfur til þeirra sem bjóða upp á leiðsöguköfun og yfirborðsköfun með ferðamenn. Er hér fyrst og fremst verið að bregðast við aukinni atvinnuköfun í tengslum við ferðaþjónustu, einkum köfun sem á sér stað í Silfru á Þingvöllum.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum