Hoppa yfir valmynd
25. maí 2012 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á smjöri og ostum.

Með vísan til 65. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og með vísan til reglugerðar nr. 455/2012, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á smjöri og ostum fyrir tímabilið 1. júlí 2012 til 30. júní 2013. 

 

Tollskrárnr: Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur



kg. % kr./kg
a)




0405.xxxx Smjör og önnur fita 01.07.12 - 30.06.13 53.000 0 394






b) Ostur og ystingur:
119.000

0406.1009 Annað - (nýr ostur, mysuostur o.fl.) 01.07.12 - 30.06.13
0 281
0406.2000 Hvers konar rifinn eða mulinn ostur 01.07.12 - 30.06.13
0 281
0406.3000 Fullunninn ostur, órifinn eða ómulinn 01.07.12 - 30.06.13
0 210
0406.4000 Gráðostur 01.07.12 - 30.06.13
0 322
0406.9000 Annar ostur 01.07.12 - 30.06.13
0 314

 

Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði 10. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, ásamt reglugerð nr. 448/2012, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vörunnar. Tilboð skulu ráða úthlutun.

 

Skriflegar umsóknir skulu berast  til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, að Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, bréflega eða á [email protected], fyrir kl. 15:00 föstudaginn 1. júní 2012.

 

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 25. maí 2012.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum