Norrænir ráðherrar á bókasýningunni í Gautaborg
Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og samstarfsráðherra verður viðstödd opnunina ásamt norrænu menningarmálaráðherrunum Anniken Huitfeldt, Noregi, Lena Adelsohn Liljeroth, Svíþjóð, Johan Ehn, Álandseyjum, Bjørn Kalsø, Færeyjum og samstarfsráðherrum Noregs og Danmerkur þeim Rigmor Aasrud og Manu Sareen. Auk þeirra munu einnig taka þátt í opnuninni Kimmo Sasi forseti Norðurlandaráðs og Merethe Lindstrøm verðlaunahafi bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár.
Af Íslands hálfu taka Sögueyjan Ísland, Bókmenntasjóður og íslenskir útgefendur þátt í sýningunni og verða með sameiginlegan íslenskan bás, þar sem íslenskar bókmenntir verða kynntar fyrir erlendum útgefendum. Fjölmargir íslenskir rithöfundar koma fram, kynna verk sín og ræða þau í samhengi við bókmenntir heimsins og líðandi stundu. Meðal annars munu fara fram umræður um heildarútgáfu Íslendingasagnanna á norsku, dönsku og sænsku.
Útgáfan er eitt stærsta þýðingarverkefni sem lagt hefur verið í á heimsvísu, en fleiri en sextíu þýðendur koma að því. Einn ritstjóra útgáfunnar, Kristinn Jóhannesson, mun þar ræða um verkefnið ásamt þýðandanum Inge Knutsson og að hvaða leyti Íslendingasögurnar tilheyra sameiginlegum bókmenntaarfi Norðurlanda.