Kynbundinn launamunur verði úr sögunni
Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra og Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, ásamt samtökum aðila vinnumarkaðarins, hafa undirritað viljayfirlýsingu um aðgerðir til að eyða kynbundnum launamun.
Í yfirlýsingunni segir að mikilvægt sé að koma með formlegum hætti á aðgerðahópi þessara aðila til að vinna að launajafnrétti kynjanna. „Markmið slíks samstarfs er að að eyða kynbundnum launamun sem enn er viðvarandi vandi á innlendum vinnumarkaði.“
Settur verður á fót aðgerðahópur í tilraunaskyni til tveggja ára með möguleika á framlengingu, ákveði aðilar að halda beri samstarfinu áfram.
Verkefni aðgerðahópsins skal meðal annars vera að vinna að samræmingu rannsókna á kynbundnum launamun, annast gerð áætlunar um kynningu jafnlaunastaðals, upplýsingamiðlun og ráðgjöf um launajafnrétti kynjanna til stofnana og fyrirtækja.
Viljayfirlýsing stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins