Baráttudagur gegn einelti 8. nóvember 2012
Tökum höndum saman og helgum 8. nóvember baráttunni gegn einelti.
Verkefnisstjórn í aðgerðum gegn einelti hefur ákveðið að halda hátíðlegan Dag gegn einelti 8. nóvember 2012. Hún hvetur alla þá fjölmörgu aðila og samtök, sem starfa á þeim vettvangi sem átakið nær til, til þess að taka höndum saman og helga 8. nóvember baráttunni gegn einelti. Sérstaklega er þessu beint til leikskóla, grunn- og framhaldsskóla, félags- og frístundamiðstöðva, auk vinnustaða og stofnana á vegum ríkisins. Ýmislegt er að hægt að gera í tilefni dagsins, s.s. að halda upp á hann með táknrænum hætti eða beina umræðunni að einelti og afleiðingum þess í samfélaginu.
Verkefnisstjórnin vonast til að sem flestir í samfélaginu taki þátt í því að setja umræðuna um einelti í brennidepil þennan dag - málefnið er brýnt og til mikils að vinna ef í sameiningu tekst að koma á þjóðarsáttmála um jákvæð og uppbyggileg samskipti.
- Nánari upplýsingar um verkefnið má nálgast á vef verkefnastjóranrinnar www.gegneinelti.is
Í tilefni dagsins stendur verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti fyrir hátíðardagskrá í Þjóðmenningarhúsinu kl. 13:00 – 15:30.
Dagskrá
13:00 – Hljóðgerningur: Bjöllur, klukkur og flautur óma um allt land.
13:00 – Bjöllukór Tónstofu Valgerðar - tónverk
13:07– Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra setur dagskrána.
13:17 – Gerður Kristný – ljóðalestur
13:27 – Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, flytur ávarp.
13:37 – Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráherra ásamt listakonunni Koggu veitir
viðurkenningu vegna jákvæðra skilaboða gegn einelti til samfélagsins.13:42 – Fulltrúi viðurkenningarhafa flytur ávarp: Myndbandasýning
13:52 – Sigurður Konráðsson, prófessor í íslensku við Háskóla Íslands: Einelti sem hugtak
14:07 – Einar Gylfi Jónsson, sálfræðingur: Hvað einkennir góðan vinnustað?
14:22 – Hafþór Freyr Líndal og Vigdís Pála Halldórsdóttir, ungmennaráði SAFT: Rafrænt einelti
14:37 – Páll Ólafsson, félagsráðgjafi: Fagráð í eineltismálum grunnskóla
14:52 – Valdimar - tónlistaratriði
15:07 – Kaffi og kökur
15:30 – Dagskrárlok
Fundarstjóri er Þóra Arnórsdóttir