Heillaóskir til Obama
Forsætisráðherra hefur sent forseta Bandaríkjanna, Barack Obama, heillaóskabréf vegna sigurs hans í forsetakosningum í Bandaríkjunum í gær.
Milli ríkjanna hefur ríkt mikil og góð vinátta um áratuga skeið og leggur forsætisráðherra í bréfi sínu áherslu á áframhaldandi gott samstarf og samvinnu, bæði tvíhliða og á alþjóðavettvangi.