Úrslit í hugmyndasamkeppni um Stöng í Þjórsárdal
Fornleifavernd ríkisins, ferðamálafulltrúi uppsveita Árnessýslu og Skeiða- og Gnúpverjahreppur hafa á undanförnum árum átt samvinnu um að bæta aðgengi að minjum í Þjórsárdal og miðlun upplýsinga um þær. Árið 2012 fékkst styrkur úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða hjá Ferðamálastofu, sem gerði þeim kleift að efna til almennrar hugmyndasamkeppni í samvinnu við Arkitektafélag Íslands um tillögur að hönnun ásýndar og umhverfis fornleifar við Stöng í Þjórsárdal.
Af nokkrum markmiðum verkefnisins má nefna:
- Að færa rústir Stangar í upprunalegt horf og sýna þær fornleifar sem í ljós komu við uppgröftinn 1939.
- Að reisa yfirbyggingu til að verja fornleifarnar gegn veðrun, vindi og því að gjóska og vatn renni inn í rústirnar.
- Að hönnunin taki mið af því að þetta sé staður þar sem fólk kemur og skoðar fornleifar og nýtur umhverfisins og kyrrðarinnar.
- Niðurstöðurnar verða birtar á vef Fornleifaverndar ríkisins. www.fornleifavernd.is