Hoppa yfir valmynd
27. nóvember 2012 Innviðaráðuneytið

Stofnfé Íbúðalánasjóðs aukið um allt að 13 milljarða króna

Stjórnarráðið
Stjórnarráðið

Ríkisstjórnin ákvað á fundi í morgun af afla heimilda í fjárlögum næsta árs til að auka stofnfé Íbúðalánasjóðs um allt að 13 milljarða króna til að styrkja eiginfjárhlutfall hans. Innheimtuferlar verða endurskoðaðir, áhættustýring styrkt og fullnustueignir sjóðsins færðar í sérstakt félag í eigu ríkisins sem annist umsýslu þeirra.

Ríkisstjórnin hefur fjallað ítarlega um stöðu Íbúðalánasjóðs, veika eiginfjárstöðu hans og erfiðan rekstur sem rekja má til útlánatapa í kjölfar efnahagshrunsins, ófullnægjandi vaxtamunar sjóðsins og áhættu af uppgreiðslum. Miðað við áætlanir stefnir í að eigið fé sjóðsins verði uppurið í lok þessa árs.

Staðan er í meginatriðum samhljóma mati stjórnenda Íbúðalánasjóðs en þeir hafa kortlagt og metið umfang áhættuþátta og viðbrögð við þeim. Framangreindir áhættuþættir hafa ítrekað verið til umræðu í stjórn Íbúðalánasjóðs á þessu ári og kynntir fyrir viðeigandi stjórnvöldum. Til þess að bregðast við aðsteðjandi vanda hefur Íbúðalánasjóður þegar komið af stað verkefnum á tilteknum sviðum og önnur eru í farvatninu.

Ríkisstjórnin mun afla heimildar í fjárlögum 2013 til að auka stofnfé Íbúðalánasjóðs um allt að 13 milljarða króna þannig að eiginfjárhlutfall sjóðsins verði ekki lægra en 3% miðað við ársbyrjun 2013. Það er þó engu síður áfram stefna stjórnvalda að eigið fé sjóðsins verði 5% líkt og kveðið er á um í reglugerð um sjóðinn. Nánari ákvörðun um fjárhæð framlagsins verður tekin um leið og uppgjör ársins 2012 liggur fyrir sem og áfangaskýrsla starfshóps velferðarráðherra.

Innheimtuferlar sjóðsins verða teknir til endurskoðunar og skuldarar hvattir til að nýta sér almenn skuldaúrræði til að koma lánum í skil. Þannig verði brugðist við fyrirsjáanlegri og vaxandi afskriftaþörf en þess jafnframt gætt að eðlilegt tillit sé tekið til stöðu þeirra sem eiga í greiðsluerfiðleikum.

Fullnustueignir Íbúðalánasjóðs verða færðar í sérstakt félag í eigu ríkisins sem fari með umsýslu eignanna, komi í veg fyrir virðisrýrnun þeirra og komi þeim í verð eftir því sem aðstæður leyfa. Þannig getur sjóðurinn einbeitt sér að því að sinna útlána- og fjármálastarfsemi í samræmi við hlutverk sjóðsins lögum samkvæmt. Jafnframt verður hluti eignanna fluttur í sérstakt félag sem annist rekstur leiguíbúða.

Áhættustýring Íbúðalánasjóðs verður styrkt og meðal annars settar fram tillögur um hvernig loka megi hluta af þeirri uppgreiðsluáhættu sem sjóðurinn stendur frammi fyrir.

Velferðarráðherra mun skipa sérstakan starfshóp, með aðild forsætisráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og Íbúðalánasjóðs, til þess að fara yfir framtíðarhorfur og framtíðarhlutverk sjóðsins sem leiði til þess að rekstur sjóðsins standi undir sér. Starfshópurinn fylgist jafnframt með framgangi framangreindra aðgerða og skili áfangaskýrslu fyrir lok febrúar 2013.

Af hálfu Íbúðalánasjóðs hefur verið til skoðunar að veita óverðtryggð lán sem verði fjármögnuð með útgáfu nýs, óverðtryggðs uppgreiðanlegs skuldabréfaflokks. Ákvarðanir um veitingu óverðtryggðra lána verði teknar þegar staða sjóðsins hefur verið treyst með framangreindum aðgerðum.

Velferðarráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið
27. nóvember 2012

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum