Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2012 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Lánasamningur vegna Vaðlaheiðarganga undirritaður

Fjármála- og efnahagsráðherra undirritaði í dag fyrir hönd ríkisins lánasamning við Vaðlaheiðargöng hf. vegna framkvæmdar við jarðgöng undir Vaðlaheiði.

Lánið er veitt á grundvelli laga nr. 48/2012 um heimild til handa ráðherra f.h. ríkissjóðs til að fjármagna gerð jarðganga undir Vaðlaheiði og með samþykki Ríkisábyrgðasjóðs.

Upphæð lánsins er 8,7 milljarðar króna og með undirrituninni er fjármögnun verkefnisins tryggð.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum