Styrkir til starfsemi atvinnuleikhópa 2013
Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur að fenginni tillögu leiklistarráðs úthlutað styrkjum til atvinnuleikhópa árið 2013.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur að fenginni tillögu leiklistarráðs úthlutað styrkjum til atvinnuleikhópa árið 2013. Alls sóttu 73 aðilar um styrki til 82 verkefna. Þá bárust 4 umsóknir um samstarfssamning til lengri tíma og 4 umsóknir um rekstrarstyrki. Eftirtalin verkefni hlutu styrki:
Leikhópur |
Verkefni |
Upphæð kr.
|
Aldrei óstelandi | Lúkas | 6600000 |
Asikli Hoyuk | Scape og Grace | 1900000 |
Auðlind | Róðarí | 3000000 |
Barnamenningarfélagið Skýjaborg | Fetta Bretta | 1200000 |
Brúðuheimar | Aladín og töfralampinn | 4700000 |
CommonNonsense | Dagbók jazzsöngvarans | 5800000 |
GRAL - Grindvíska atvinnuleikhúsið | Eiðurinn og eitthvað | 6800000 |
Íslenska hreyfiþróunarsamsteypan | Antiklímax | 4000000 |
Kviss búmm bang | Við hin | 5500000 |
Lab Loki | Stóru börnin | 7800000 |
Leikhópurinn Bláskjár | Bláskjár | 5800000 |
Málamyndahópurinn | Fyrirgefningin | 2600000 |
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir og Sigríður Soffía Níelsdóttir | Skrattinn úr sauðaleggnum | 3400000 |
Nordpaa/Norður | Fantastar | 9000000 |
Sokkabandið | Kyrrð | 7900000 |
Valgerður Rúnarsdóttir og Urður Hákonardóttir | (Ó)raunvera | 4200000 |
VaVaVoom | Wide Slumber | 8000000 |
Á fjárlögum 2013 eru 89,8 milljónir króna á fjárlagaliðnum „Styrkir til starfsemi atvinnuleikhópa“ en voru á síðasta ári 71,2 milljónir króna. Hækkunin stafar af framlagi frá fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar.
Í leiklistarráði eru Guðrún Vilmundardóttir formaður, skipuð án tilnefningar, Sveinbjörg Þórhallsdóttir tilnefnd af Leiklistarsambandi Íslands og Hilmar Jónsson tilnefndur af Bandalagi sjálfstæðra leikhúsa.
Reykjavík 7. febrúar 2013