Nýtt skipulag fjármála- og efnahagsráðuneytis
Nýtt skipulag fjármála- og efnahagsráðuneytis tók gildi í dag, 3. apríl 2013, þegar ráðherra staðfesti ákvörðun um skipulag ráðuneytisins, sbr. 17. gr. laga um Stjórnarráð Íslands nr. 115/2011 með síðari breytingum.
Þá ákvörðun sem nú er komin til framkvæmda á skipulagi ráðuneytisins má að nokkru leyti rekja til breytinga sem gerðar voru á Stjórnarráði Íslands og flutnings verkefna milli ráðuneyta sem gildi tóku 1. september sl., en þá voru málefni fjármálaráðuneytisins og málefni er varða efnahagsmál færð undir eitt og sama ráðuneyti: fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Samkvæmt ákvörðun fjármála- og efnahagsráðherra um skipulag ráðuneytisins skiptist starfsemi þess nú í fjórar skrifstofur og tvö svið, auk nýrrar skrifstofu yfirstjórnar.
Skrifstofurnar eru
- skrifstofa efnahagsmála,
- skrifstofa opinberra fjármála,
- skrifstofa skattamála og
- skrifstofa stjórnunar og umbóta.
Sviðin eru
- lögfræðisvið og
- rekstrarsvið.
Skilgreindir verkefnahópar vinna að málefnum sem varða verksvið fleiri en einnar skipulagseiningar ráðuneytisins.
Ráðuneytisstjóri annast samræmingu á starfsemi skrifstofa og sviða og stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.
Við þær breytingar sem nú eru gerðar á skipulagi fjármála- og efnahagsráðuneytisins verður jafnframt til sérstök eining, er starfar í umboði ráðuneytisins, sem ætlað er að sinna kjara- og mannauðsmálum ríkisins.
Nánar er fjallað um starfsemi og skipulag ráðuneytisins á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins.