Jóhannes Þór ráðinn aðstoðarmaður forsætisráðherra
Jóhannes Þór Skúlason hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra.
Jóhannes Þór er 40 ára, stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík, og útskrifaðist sem sagnfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1999. Jóhannes Þór hefur verið aðstoðarmaður formanns Framsóknarflokksins frá 2011 en starfaði áður sem grunnskólakennari við Seljaskóla í Reykjavík.
Jóhannes Þór er kvæntur Æsu Strand Viðarsdóttur bókasafns- og upplýsingafræðingi og eiga þau tvö börn.