Hönnunarsjóður tekur til starfa
Hlutverk hans er að efla þekkingu og atvinnu- og verðmætasköpun á sviði hönnunar og arkitektúrs.
Stjórn Hönnunarsjóðs hefur tekið til starfa og fyrsta verkefni hennar verður að gera tillögur til mennta- og menningarmálaráðherra um úthlutunarreglur. Í kjölfarið verður auglýst eftir umsóknum og er ráðgert það verði síðar á þessu ári.
Í reglum sjóðsins segir m.a. að hlutverk hans sé að efla þekkingu og atvinnu- og verðmætasköpun á sviði hönnunar og arkitektúrs með fjárhagslegum stuðningi og ráðgjöf. Einnig að styrkja kynningar- og markaðsstarf erlendis sem stuðlar að útflutningi á íslenskri hönnun. Heimilt verður að veita þróunar- og rannsóknarstyrki, verkefnastyrki, markaðs- og kynningarstyrki og ferðastyrki svo og til annarra verkefna sem tilgreind verða í úthlutunarreglum. Styrkþegar geta verið einstaklingar, félög, stofnanir og fyrirtæki.
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað sjóðnum fimm manna stjórn til þriggja ára, sem hér segir:
- Ólafur Tr. Mathiesen formaður, skipaður án tilnefningar,
- Íva Rut Viðarsdóttir varaformaður, tilnefnd af Hönnunarmiðstöð Íslands,
- Ástþór Helgason tilnefndur af Hönnunarmiðstöð Íslands,
- Halla Helgadóttir tilnefnd af Hönnunarmiðstöð Íslands,
- Helga Haraldsdóttir tilnefnd af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
Varamenn eru:
- Greipur Gíslason skipaður án tilnefningar,
- Guðný Hafsteinsdóttir tilnefnd af Hönnunarmiðstöð Íslands,
- Þráinn Hauksson tilnefndur af Hönnunarmiðstöð Íslands,
- Haukur Már Hauksson tilnefndur af Hönnunarmiðstöð Íslands,
- Þórður Reynisson tilnefndur af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.