Hvatt til aukinnar notkunar rafrænna skilríkja
Útbreiðsla rafrænna skilríkja hefur aukist undanfarin ár, en þau má bæði nota til auðkenningar og undirskriftar. Embætti ríkisskattstjóra er í hópi þeirra sem hvetja til aukinnar notkunar rafrænna skilríkja.
Í umfjöllun á vef ríkisskattstjóra um rafræn skilríki er hvatt til þess að rafræn skilríki verði í auknum mæli notuð til auðkenningar og þar sem við á, einnig til undirritunar.
Þetta er í samræmi við niðurstöður athugana á fullvissustigi rafrænna auðkenna. Í skýrslu ráðgjafarfyrirtækisins ADMON eru rafræn skilríki undir Íslandsrót öruggasta rafræna auðkenningin sem í boði er á Íslandi.
Fimm ár eru síðan almenn útgáfa á rafrænum skilríkjum hófst og tæp 90% Íslendinga 15 ára og eldri geta nýtt sér þau.
Tenglar:
Umfjöllun á vef ríkisskattstjóra um rafræn skilríki
Skýrsla ráðgjafarfyrirtæksins ADMON um öryggi rafrænna auðkenna
Vefrit fjármála- og efnahagsráðuneytis um rafræn skilríki