Hoppa yfir valmynd
26. september 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Fræðsluþing: Vitundarvakning um ofbeldi gegn börnum

Fræðsluþing 2013

Vitundarvakning um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum stendur fyrir fræðsluþingum víða um land í október 2013. Þingin eru hugsuð fyrir stjórnendur, kennara og annað starfsfólk grunn- og framhaldsskóla. Einnig eru hvattir til að mæta; forvarnarfulltrúar, náms- og starfsráðgjafar, þeir sem starfa við íþrótta-og æskulýðsmál, barnavernd, heilsugæslu og félagsþjónustu að ógleymdum sveitarstjórnum og löggæslu.

Vitundavakning leggur áherslu á að fræða þá sem vinna með börnum um eðli og afleiðingar kynferðislegs, andlegs og líkamlegs ofbeldis, svo allir séu í stakk búnir til að bregðast við, ef börn sýna þess merki að hafa orðið fyrir ofbeldi.

Vitundarvakning um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum heyrir undir þrjú ráðuneyti, innanríkisráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti og velferðarráðuneyti. Nánari upplýsingar eru á vefssvæði verkefnisins.

Dagskrá fræðsluþinga 2013

12.30

    Hádegissnarl.

13:00    Ávarp ráðherra.
13:10     Vitundarvakning. Kynning á verkefninu og vefnum
13:15    Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, handritshöfundur og verkefnastjóri Fáðu já. „Fáðu já og annað fræðsluefni – og hvað svo?“.
13:30    Bergsteinn Jónsson / Hjördís Þórðardóttir frá UNICEF á Íslandi. „Réttindafræðsla sem forvörn.“
13:45    Kaffi & te.
14:00    Ólöf Ásta Farestveit/Margrét Kristín Magnúsdóttir/Þóra Sigfríður Einarsdóttir/Þorbjörg Sveinsdóttir frá Barnahúsi. „Einkenni þolenda kynferðisbrots.“
14.15    Anna Kristín Newton/María Jónsdóttir/Ólafur Bragason/Sólveig Fríða Kjærnested/Þórarinn Viðar Hjaltason: „Skaðleg kynhegðun barna og klám.“
14:30    Stefán Eiríksson, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu flytur erindið „Rannsókn kynferðisbrota og annarra brota gegn börnum.“
14:45    Kaffi og veitingar.
15:20    Hópastarf sem fyrirlesarar stýra.
16:20     Stutt samantekt.
16:40    Bæjarstjóri/forseti bæjarstjórnar slítur þinginu.

Skráning á þingin: [email protected]







Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum