Hoppa yfir valmynd
18. október 2013 Matvælaráðuneytið

Forsendur byggðakvóta fiskveiðiársins 2013/2014

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, hefur úthlutað 6.824 þorskígildistonna byggðakvóta fiskveiðiársins 2013/2014, samkvæmt 10. gr. laga nr. 116/2006, með síðari breytingum og samkvæmt reglugerð ráðuneytisins nr. 664 frá 10. júlí 2013.

Alls er byggðakvóta úthlutað til 32 sveitarfélaga og í þeim fengu 47 byggðarlög úthlutun.

Úthlutun byggðakvótans byggir á upplýsingum frá Fiskistofu um samdrátt í botnfiskafla, botnfiskaflamarki og vinnslu botnfisks annars vegar og samdrætti í rækju- og skelvinnslu hins vegar frá fiskveiðiárinu 2003/2004 til fiskveiðiársins 2012/2013.

Hámarksúthlutun til byggðarlags er 300 þorskígildistonn og fá sex byggðarlög það hámark. Lágmarksúthlutun er 15 þorskígildistonn, eigi byggðarlag á annað borð rétt til úthlutunar, og fá fimm byggðarlög þá úthlutun.

Nánari upplýsingar um úthlutunina má sjá hér.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum