Hoppa yfir valmynd
19. desember 2013 Matvælaráðuneytið

Niðurstaða úthlutunar á ESB tollkvótum á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið janúar – desember 2014

Fimmtudaginn 12. desember 2013, rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum  frá Evrópubandalaginu fyrir tímabilið janúar – desember 2014.

Samtals bárust nítján gild tilboð í tollkvótann.

Nautgripakjöt í vörulið 0202.Tíu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á nautgripakjöti, samtals 334.100 kg. á meðalverðinu 293 kr./kg.  Hæsta boð var 601 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 100.000 kg. á meðalverðinu 460 kr./kg.

 

Svínakjöt í vörulið 0203.Níu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á svínakjöti, samtals 615.000 kg. á meðalverðinu 125 kr./kg.  Hæsta boð var 270 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sex fyrirtækjum um innflutning á 200.000 kg. á meðalverðinu 200 kr./kg.

 

Alifuglakjöt, í vörulið 0207.Þrettán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, samtals 819.507 kg á meðalverðinu 414 kr./kg.  Hæsta boð var 700 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 200.000 kg á meðalverðinu 616 kr./kg.

 

Kjöti og ætum hlutum af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;...(**) í vörulið ex 0210.Sjö tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á kjöti og ætum hlutum af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;...(**), samtals 45.250 kg. á meðalverðinu 120 kr./kg.  Hæsta boð var 215 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækjum um innflutning á 45.250 kg. á meðalverðinu 120 kr./kg.

 

Ostar og ystingur í vörulið 0406. Tíu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið 0406, samtals 169.600 kg. á meðalverðinu 296 kr./kg.  Hæsta boð var 435 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækjum um innflutning á 80.000 kg. á meðalverðinu 410 kr./kg.

 

Ostur og ystingur í vörulið ex 0406;...(**). Fjögur tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið ex 0406...(**) samtals 37.000 kg. á meðalverðinu 318 kr./kg.  Hæsta boð var 465 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 20.000 kg. á meðalverðinu 434 kr./kg.

 

Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti.... í vörulið 1601. Níu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á pylsum og þess háttar vörum úr kjöti.... á vörulið 1601, samtals 66.250 kg. á meðalverðinu 123 kr./kg.  Hæsta boð var 205 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá átta fyrirtækjum um innflutning á 50.000 kg. á meðalverðinu 142 kr./kg.

 

Annað kjöt.... í vörulið 1602. Ellefu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á öðru kjöti.... á vörulið 1602, samtals 200.000 kg. á meðalverðinu 299 kr./kg.  Hæsta boð var 600 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá átta fyrirtækjum um innflutning á 50.000 kg. á meðalverðinu 505 kr./kg.

 

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-neytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:

 

Kjöt af nautgripum, fryst, 0202

Magn (kg) Tilboðsgjafi
       600 Ekran ehf
  10.000 Íslenskar matvörur ehf
  30.000 Kjarnafæði ehf.
  17.500 Sælkeradreifing ehf
  41.900 Ölgerð Egils Skallagrímssonar ehf

 

Svínakjöt, fryst, 0203 

Magn (kg) Tilboðsgjafi
    3.000 Íslenskar matvörur ehf
  40.000 Kaupás hf
  60.000 Kjarnafæði ehf
  84.000 Mata ehf
    3.000 Sælkeradreifing ehf
  10.000  Ölgerð Egils Skallagrímssonar ehf

 

Kjöt af alifuglum, fryst, 0207

Magn (kg) Tilboðsgjafi
 104.493 Aðföng hf
        500 Ekran ehf
   50.000 Innnes ehf
   30.007 Mata ehf
   15.000 Sælkeradeifing ehf

 

Kjöt og ætir hlutar af dýrum.. ex 0210 

Magn (kg) Tilboðsgjafi
  20.000 Aðföng hf
    5.000 Innnes ehf
    5.000 Íslenskar matvörur ehf
    2.000 Kaupás hf
    3.000 Perlukaup ehf
  10.000 Sælkeradreifing ehf
       250 Xata ehf

 

Ostur og ystingur 0406

Magn (kg) Tilboðsgjafi
  10.000 Aðföng hf
    5.000 Ekran ehf
  27.000 Innnes ehf
    5.000 Íslenskar matvörur ehf
    3.000 KCF ehf
  10.000 Mjólkursamsalan
  20.000 Sólstjarnan ehf

 

Ostur og ystingur ex 0406

Magn (kg) Tilboðsgjafi
   14.000 Innnes ehf
     4.000 Kaupás hf
     2.000 Mjólkursamsalan

 

Pylsur og þess háttar vörur 1601

Magn (kg) Tilboðsgjafi
   29.750 Aðföng hf
     3.000 Innnes ehf
     6.000 Íslenskar matvörur ehf
     1.000 Kaupás hf
     3.000 Rain ehf
     4.000 SP Company ehf
     3.000 Sælkeradreifing ehf
        250 Xata ehf

 

Annað kjöt, hlutar úr dýrum.. 1602 

Magn (kg) Tilboðsgjafi
     7.000 Ekran ehf
     5.250 Innnes ehf
     2.000 Íslenskar matvörur ehf
     3.000 KFC ehf
     8.000 Sólstjarnan ehf
   14.000 Sælkeradreifing ehf
        750 Zilia ehf
   10.000 Ölgerð Egils Skallagrímssonar ehf

 

Reykjavík, 19. desember  2013

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum