Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta
Deildir innan Tryggingarsjóðs innstæðueigenda eru sjálfstæðar og bera ekki ábyrgð á skuldbindingum hverrar annarrar, en þetta áréttar fjármála- og efnahagsráðuneytið í ljósi umræðu undanfarna daga.
Tryggingarsjóður innstæðueigenda starfar samkvæmt lögum nr. 98/1999, um innstæðutryggingar og tryggingarkerfi fyrir fjárfesta. Sjóðurinn er sjálfseignarstofnun og starfar í þremur sjálfstæðum deildum, þ.e. tveimur innstæðudeildum og einni verðbréfadeild.
Í kjölfar endurreisnar bankakerfisins var komið á fót nýrri innstæðudeild innan sjóðsins sem tryggir innstæður í eigu almennings í endurreistu bankakerfi. Einnig voru gerðar breytingar á lögunum þar sem sjálfstæði deilda sjóðsins var ítrekað og skýrt tekið fram að deildirnar bera ekki ábyrgð á skuldbindingum hverrar annarrar.
Lög um innstæðutryggingar og tryggingarkerfi fyrir fjárfesta