Innritun 10. bekkinga í framhaldsskóla á haustönn 2014
Um 66% sóttu um nám á hefðbundnum bóknámsbrautum og um 12% um verk- eða starfsnám.
Nú er lokið innritun nemenda, sem luku 10. bekk í vor, í framhaldsskóla á haustönn 2014. Um skólavist sóttu 4.113 eða 97,7% allra þeirra sem útskrifuðust úr grunnskóla vorið 2014. Um 99% nemenda fara í skóla sem þeir höfðu sett sem fyrsta eða annan valkost. Sem fyrr eru bóknámsbrautir vinsælastar og aðsókn í verk- starfsnám minnkað frá fyrra ári.
Fjöldi umsókna flokkaðar eftir skólum:
Skóli | Fjöldi umsókna alls | Fjöldi umsókna alls val 1 | Fjöldi umsókna alls val 2 |
---|---|---|---|
BHS | 366 | 157 | 201 |
FAS | 33 | 28 | 5 |
FÁ | 209 | 64 | 122 |
FB | 377 | 174 | 198 |
FG | 501 | 200 | 301 |
FISKT | 4 | 3 | 1 |
FÍV | 46 | 39 | 7 |
FJS | 4 | 3 | 1 |
FL | 70 | 29 | 41 |
FLB | 279 | 115 | 154 |
FMOS | 170 | 82 | 87 |
FNV | 98 | 76 | 22 |
FS | 251 | 192 | 57 |
FSH | 31 | 18 | 13 |
FSN | 42 | 34 | 7 |
FSu | 245 | 191 | 54 |
FVA | 140 | 94 | 46 |
IH | 141 | 64 | 77 |
KVSK | 629 | 287 | 341 |
MA | 351 | 224 | 127 |
MB | 35 | 21 | 13 |
ME | 98 | 72 | 24 |
MH | 649 | 367 | 282 |
MÍ | 73 | 65 | 8 |
MK | 477 | 166 | 305 |
ML | 87 | 28 | 59 |
MR | 477 | 256 | 221 |
MS | 452 | 136 | 293 |
MTR | 33 | 21 | 12 |
NFR | 2 | 1 | 0 |
TS | 350 | 172 | 178 |
VA | 57 | 32 | 25 |
VÍ | 639 | 484 | 155 |
VMA | 474 | 227 | 247 |
Í fyrstu umferð höfðu um 96% umsækjenda höfðu fengið skólavist í þeim skólum sem þeir sóttu um í og því rúm 4% nemenda eða 197 nemendur án skólavistar. Námsmatsstofnun sá um umsýslu innritunar og ráðuneytið um að útvega skólalausum skólavist. Í góðri samvinnu við starfsfólk framhaldskólanna tókst að ljúka innritun viku á undan áætlun og hefur öllum þeim sem sóttu um verið útveguð skólavist. Að auki tókst að hækka hlutfall þeirra sem fengu inn í öðrum hvorum þeim skóla sem þeir sóttu um í úr 95% í tæp 99% sem að mati ráðuneytisins er mjög góður árangur. Því miður tókst ekki að koma 39 nemendum í skólavist í skóla sem þeir höfðu valið og þeim boðin skólavist í öðrum skólum.
Hlutfall innritunar flokkað eftir fyrsta, öðru og þriðja vali:
Líkt og undanfarin ár sóttu flestir 10. bekkingar eða 66% um nám á hefðbundnum bóknámsbrautum. 17% nemenda uppfylltu ekki inntökuskilyrði beint inn á bók- eða verknámsbrautir og þurfa því að hefja nám á almennum námsbrautum eða framhaldsskólabrautum. 12% nemenda sóttu um verk- eða starfsnám og er það nokkuð minna en árinu áður en þá sóttu tæp 14% nemenda um verk- og starfsnámsbrautir. 5% nemenda sóttu um og innrituðust á listnámsbrautir.
Líkt og undanfarin ár var náttúrufræðibrautin vinsælasta bóknámsbrautin en alls sóttu 1.485 nemendur af þeim 2.732 sem innrituðust í bóknám um nám á náttúrufræðibraut. 659 nemendur eða 24% sóttu um félags- eða hugvísindabraut, 9% á viðskipta og hagfræðibraut. Minni aðsókn var á aðrar brautir en hér má sjá skiptingu nemenda eftir bóknámsbrautum.
Nemendur sem innrituðust í verknám skiptust niður á fjölmargar námsleiðir. Ekki var hægt að sjá að einhver ein tegund verknáms væri „vinsælli“ en önnur en ef taka ætti einhverjar greinar fram yfir aðrar þá má segja að flestir hafi innritast í tölvunám og grunndeildir málm-, raf- og byggingagreina.