Ræddi stöðu efnahagsmála í London
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, flutti í gær erindi á fundi Iceland‘s Bright Future sem fram fór í London á vegum Bresk-íslenska viðskiptaráðsins.
Í erindi sínu á fundinum ræddi ráðherra stöðu og horfur í íslenskum efnahagsmálum.
Meðan á ferðinni stóð ræddi ráðherra jafnframt stöðu ríkisfjármála, gjaldeyrishöft og fleiri mál við erlenda fjölmiðla.
Viðtöl hans við fréttastofur Bloomberg og CNBC er að finna hér að neðan: