Hoppa yfir valmynd
24. október 2014 Matvælaráðuneytið

Sjávarútvegsráðherrar Íslands og Síle ræddu aukið samstarf á sviði sjávarútvegsmála

Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Raúl Súnico aðstoðarsjávarútvegsráðherra Síle, ásamt sendinefndum sínum, áttu í dag tvíhliða fund í Puerto Varas. Á fundinum var fjallað um sjávarútvegs- og fiskeldismál. 

Fundur sjávarútvegsráðherra í Síle

Ísland og Síle eru með samstarfsyfirlýsingu frá árinu 2002 um samstarf á sviði sjávarútvegsmála. Ráðherrarnir ræddu að auka þetta samstarf en viðfangsefni þjóðanna á sviði sjávarútvegs eru að mörgu leyti lík. Síle sýndi reglum Íslands um togveiðar og svæðalokanir sérstakan áhuga og lýstu yfir áhuga á frekari upplýsingum um aðferðir Íslands við hafrannsóknir og gagnasöfnun. Sjávarútvegur er þriðja stærsta útflutningsgrein Síle og keppast stjórnvöld nú við að stýra veiðum að hámarksafrakstri (MSY).

Síle er mikilvægur markaður fyrir íslensk laxahrogn. Fyrir um ári síðan lokuðu þarlensk stjórnvöld fyrir innflutning á íslenskum laxahrognum á grundvelli sjúkdómsvarna. Ráðherrarnir fóru yfir þá ákvörðun og hvernig samvinna embættismanna í Síle og á Íslandi stuðlaði að því að málið leystist og hefur markaðurinn aftur opnast fyrir íslensk hrogn. Rætt var að viðhalda þessum góðu samskiptum og vinna áfram að þeim úrlausnarefnum sem út af standa. 

Síle - fundur

Viðskipti og samstarf á milli Íslands og Síle er einna helst með laxahrogn og tæknibúnað fyrir fiskvinnslu frá Íslandi og landbúnaðarafurðir og skip frá Síle til Íslands. Einnig er ljóst að tækifæri eru til staðar í samvinnu á sviði nýtingu jarðvarma.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum