Ferðastyrkir til að taka þátt í sænsk - íslenskum verkefnum
Frestur til að sækja um styrki úr Sænsk - íslenska samstarfssjóðnum rennur út 1. febrúar nk.
Minnt er á að frestur til að sækja um ferðastyrki úr Sænsk - íslenska samstarfssjóðnum rennur út 1. febrúar nk. sbr. eftirfarandi auglýsingu sem birtist 27. nóvember 2014:
Árið 2015 verða veittir úr Sænsk - íslenska samstarfssjóðnum ferðastyrkir til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk - íslenskum verkefnum. Markmið sjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði vísinda, menntunar og menningar.
- Um styrki þessa skal sótt á sérstökum eyðublöðum sem er að finna á vefslóðinni www.norden.se.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2015 og skal skila umsóknum samkvæmt upplýsingum á heimasíðu sjóðsins. Styrkjum verður úthlutað í apríl nk.
Stjórn sænsk- íslenska samstarfssjóðsins 27. nóvember 2014.
Ljósmynd: Karin Beate Nøsterud/norden.org