Skýrsla og ályktun um stöðu íslensks táknmáls
Málnefnd um íslenskt táknmál hefur sent reglulega frá sér ályktanir um stöðu táknmálsins og fleira er það varðar ásamt skýrslu.
Alþingi samþykkti lög um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls 7. júní 2011. Í þeim er m.a. kveðið á um að íslenska táknmálið sé fyrsta mál þeirra sem þurfa að reiða sig á það til tjáningar og samskipta. Var það mikill sigur fyrir málsamfélag táknmálstalandi og er 7. júní því hátíðardagur í hugum margra.
Málnefnd um íslenskt táknmál hefur sent reglulega frá sér ályktanir um stöðu táknmálsins og fleira er það varðar ásamt skýrslu.
- Skýrsla Málnefndar um íslenskt táknmál um stöðu þess 7. júní 2015
- Táknmálsþýðing á skýrslu málnefndarinnar
- Report of the Committee on Icelandic Sign Language,
7th June 2015
Í lögunum er kveðið á um að ríki og sveitarfélög skuli tryggja að allir sem þess þurfa eigi kost á þjónustu á íslensku táknmáli. Þar segir einnig að ríki og sveitarfélög beri ábyrgð á því að varðveita íslenskt táknmál, þróa það og stuðla að notkun þess.
Í Málnefnd um íslenskt táknmál eru:
- Valgerður Stefánsdóttir formaður
- Ari Páll Kristinsson varaformaður
- Heiðdís Dögg Eiríksdóttir
- Hjördís Anna Haraldsdóttir
- Rannveig Sverrisdóttir