Ný stjórn Bankasýslu ríkisins
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað nýja stjórn Bankasýslu ríkisins. Hlutverk stofnunarinnar er að fara með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum í samræmi við lög, góða stjórnsýsluhætti og eigendastefnu ríkisins.
Í stjórninni sitja Lárus L. Blöndal, hæstaréttarlögmaður, formaður, Hulda Dóra Styrmisdóttir, hagfræðingur, varaformaður og Sigurjón Örn Þórsson, stjórnmálafræðingur. Varamaður er Egill Tryggvason, viðskiptafræðingur.
Hulda Dóra og Egill hafa áður setið í stjórn stofnunarinnar.