Hoppa yfir valmynd
22. október 2015 Matvælaráðuneytið

5.662 tonna byggðakvóta úthlutað til 32 sveitarfélaga

Löndun
Löndun

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, hefur úthlutað 5.662 þorskígildistonna byggðakvóta fiskveiðiársins 2015/2016, samkvæmt 10. gr. laga nr. 116/2006, með síðari breytingum og samkvæmt reglugerð ráðuneytisins nr. 604 frá 3. júlí 2015 og reglugerð nr. 920 frá 16. október 2015.  

Alls er byggðakvóta úthlutað til 32 sveitarfélaga og í þeim fengu 48 byggðarlög úthlutun.

Úthlutun byggðakvótans byggir á talnaupplýsingum frá Fiskistofu um samdrátt í botnfiskafla, botnfiskaflamarki og vinnslu botnfisks annars vegar og samdrætti í rækju- og skelvinnslu hins vegar frá fiskveiðiárinu 2005/2006 til fiskveiðiársins 2014/2015.

Hámarksúthlutun til byggðarlags er 300 þorskígildistonn og fá þrjú byggðarlög það hámark. Lágmarksúthlutun er 15 þorskígildistonn, eigi byggðarlag á annað borð rétt til úthlutunar, og fá 5 byggðarlög þá úthlutun.

  • Nánari upplýsingar um úthlutunina má sjá hér.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum