Hoppa yfir valmynd
27. október 2015 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Jóhannes Stefánsson ráðinn sem aðstoðarmaður ráðherra

Jóhannes Stefánsson - mynd
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra hefur ráðið Jóhannes Stefánsson sem aðstoðarmann sinn

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur ráðið Jóhannes Stefánsson sem aðstoðarmann sinn. Jóhannes er héraðsdómslögmaður og er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík, en hann stundaði einnig skiptinám við Kaupmannahafnarháskóla. Hann útskrifaðist með BA gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands.

Jóhannes hefur starfað sem blaðamaður á Viðskiptablaðinu og Fréttablaðinu en einnig sem fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2. Hann hefur að auki starfað fyrir sendiráð Bandaríkjanna í Reykjavík, Arion banka og LEX lögmannsstofu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum