Hoppa yfir valmynd
17. nóvember 2015 Matvælaráðuneytið

Auglýsingum tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Evrópubandalaginu.

Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópubandalagsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar nr. 1023/2015 , um úthlutina, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á landbúnaðarvörum, upprunnum í ríkjum Evrópubandalagsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 31. desember 2016:

Vöruliður: Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
kg % kr./kg
0202 Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst 01.01. - 31.12.16 100.000 0 0
0203 Svínakjöt, fryst 01.01. - 31.12.16 200.000 0 0
0207 Kjöt af alifuglum, fryst 01.01. - 31.12.16 200.000 0 0
0208.9003 Rjúpur, frystar 01.01. - 31.12.16 ótilgreint 0 0
ex 0210 Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum (**) 01.01. - 31.12.16 50.000 0 0
ex 0406 Ostur og ystingur (**) 01.01. - 31.12.16 20.000 0 0
0406 Ostur og ystingur 01.01. - 31.12.16 80.000 0 0
1601 Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum 01.01. - 31.12.16 50.000 0 0
1602 Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum 01.01. - 31.12.16 50.000 0 0

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar vegna innflutnings á landbúnaðarvörum nr. 448/2012.

Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 15:00 fimmtudaginn 26. nóvember 2015.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum