Nærri 180 milljónum króna varið til að auka öryggi ferðamanna
Ferðaþjónustan er orðin ein meginstoð íslensks atvinnulífs og í kjölfar fjölgunar ferðamanna er ljóst að aukið álag er á ýmsa innviði samfélagsins sem bregðast þarf við, einkum er varðar vegakerfið og öryggisþætti. Settar hafa verið fram tillögur að verkefnum sem byggjast á vinnu starfshóps ráðuneytisins um öryggi ferðamanna sem Stjórnstöð ferðamála útfærði nánar.
Helstu þættir þessa átaks eru:
Öryggi á vegum
Vegagerðin bætir merkingar við einbreiðar brýr og annast úrbætur við hættuleg gatnamót af eigin rekstrarfé en nýtir viðbótarframlag til að setja upp lokunarhlið eða efla merkingar þar sem þess er þörf á ýmsum fjall- og hálendisvegum; bæta veg austan Geysis; setja upp skilti við varasöm vöð og sinna auknu viðhaldi á hálendisvegum. Kostnaður vegna þessara þátta er um 80 milljónir króna. Þá skal tekið fram að Vegagerðin ver nú þegar 385 milljónum króna til verkefna í tengslum við umferðaröryggi og eru viðhalds- og þjónustuliðir nýttir í þessum tilgangi árið 2016.
Löggæsla
Lagt er til að löggæsla vegna ferðamanna á helstu ferðamannasvæðum verði efld og gerð sýnilegri yfir sumarið. Svæðin eru Gullni hringurinn og uppsveitir Árnessýslu, hálendið sunnanlands, hálendið á Norðurlandi eystra og Suðausturland. Á hverju svæði yrði bætt við einni lögreglubifreið og samtals fjórum lögreglumönnum á vöktum. Heildarviðbótarkostnaður vegna þessa er metinn á 98 milljónir króna.
Hálendisvakt björgunarsveitanna
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur staðið að hálendisvakt með um tvö hundruð sjálfboðaliðum og er fyrirhugað er að hún verði á þremur stöðum í júlí og ágúst. Er nokkur þúsund ferðamönnum liðsinnt á hverju sumri og er verkefnið styrkt með fimm milljónum króna.