Hoppa yfir valmynd
29. júlí 2016 Matvælaráðuneytið

ESA samþykkir ívilnanasamning við Silicor Material

ESA
ESA

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur samþykkt ívilnanasamning íslenska ríkisins við Silicor Materials vegna byggingar á sólarkísilverksmiðju á Grundartanga. 

Ívilnanasamningurinn er metinn á um 4,6 milljarða íslenskra króna og verður í formi skattahagræðis og ívilnandi reglna um leigu og fyrningu. Gert er ráð fyrir að verksmiðjan skapi um 450 störf og stuðli að efnahagslegri uppbyggingu á svæðinu.

Ívilnanir til Silicor Material byggja á almennri rammalöggjöf um ívilnanir til nýfjárfestinga á Íslandi sem ætlað er að efla atvinnulíf og byggðaþróun.

Niðurstaða ESA er að ívilnanasamningurinn hafi hvatningaráhrif þar sem ekki hefði verið ráðist í þessa framkvæmd án fyrirheita um ríkisaðstoð. Aðstoðin stuðlar þar með að atvinnusköpun, laðar til sín fyrirtæki, eykur efnahagslega fjölbreytni og býr til störf.

 

 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum