Hoppa yfir valmynd
3. ágúst 2016 Matvælaráðuneytið

Óskar Jósefsson ráðinn framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála

Óskar Jósefsson - mynd

„Þetta er mjög áhugavert starf að takast á við og mörg spennandi verkefni sem bíða. Innleiðing Vegvísis er komin vel af stað og mikilvægt að halda áfram að vinna að enn frekari samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði ferðamála. Flest bendir til þess að áfram verði öflugur vöxtur í ferðaþjónustu. Við Íslendingar stöndum frammi fyrir ýmsum áhugaverðum áskorunum við að byggja upp sem besta umgjörð um þessa atvinnugrein og með þeim hætti að um hana ríki  sátt í samfélaginu“, segir Óskar Jósefsson sem hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála og tók til starfa í gær. 

Rekstarfélag Stjórnstöðvar ferðamála auglýsti starfið laust til umsóknar í maí og var Óskar valinn úr hópi 42ja umsækjenda. Hagvangur annaðist ráðningaferlið ásamt stjórn rekstarfélagsins.

Óskar Jósefsson hefur víðtæka stjórnunarreynslu og hefur starfað við stjórnendaráðgjöf til margra ára, bæði á almennum og opinberum markaði. Hann hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu, stofnaði ráðgjafarfyrirtækið Advance ehf. árið 2008 og hefur rekið það síðan, auk þess að sinna ýmsum öðrum verkefnum. Hann hefur fjölbreytta reynslu af því að leysa flókin verkefni og tók meðal annars við stöðu forstjóra hjá Landssíma Íslands hf. á umbrotatímum og leiddi fyrirtækið í gegnum þá. Hann var forstjóri Ístaks hf. og framkvæmdastjóri upplýsinga- og tæknisviðs Kaupþings banka, auk þess sem hann stýrði ráðgjafastarfsemi PwC um nokkura ára skeið. Óskar er verkfræðingur með M.Sc. gráðu í iðnaðar- og rekstrarverkfræði frá Danmörku.

Ríkið og Samtök ferðaþjónustunnar stofnuðu í vor sameignarfélag um rekstur Stjórnstöðvar ferðamála. Nafn þess er Rekstrarfélag Stjórnstöðvar ferðamála sf. og er það í 50% eigu ríkissjóðs og 50% í eigu Samtaka ferðaþjónustunnar. Stjórnstöð ferðamála er samstarfsvettvangur stjórnvalda, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka ferðaþjónustunnar. Stjórnstöð ferðamála mun starfa til ársloka 2020 og er henni ætlað að vinna að innleiðingu þeirra verkefna sem sett voru fram í Vegvísi í ferðaþjónustu.

Nánari upplýsingar veita: 

  •  Árnadóttir, stjórnarmaður í Rekstrarfélagi Stjórnstöðvar ferðamála sf., sími: 822 0057, [email protected]  
  • Óskar Jósefsson, sími: 8426500, [email protected].

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum