Hoppa yfir valmynd
31. ágúst 2016 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skipaður skrifstofustjóri skrifstofu opinberra fjármála

Björn Þór Hermannsson - mynd

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Björn Þór Hermannsson til að gegna embætti skrifstofustjóra skrifstofu opinberra fjármála, frá 1. september næstkomandi.

Björn Þór lauk B.Sc. prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. í fjármálahagfræði frá sama skóla árið 2010. Hann hefur starfað í fjármála- og efnahagsráðuneytinu frá 2011 en áður starfaði hann í velferðarráðuneytinu. Björn hefur frá árinu 2014 verið staðgengill skrifstofustjóra.

Embættið var auglýst í júní síðastliðnum og sóttu 13 um.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum