Hoppa yfir valmynd
29. september 2016 Matvælaráðuneytið

"MINDING THE FUTURE" - Alþjóðleg ráðstefna um lífhagkerfið 5. og 6. okt.

NordBio
NordBio

Nú er að ljúka þriggja ára áætlun um norræna lífhagkerfið (NordBio) sem hófst árið 2014 þegar Ísland gegndi formennsku í Norrænu ráðherranefndinni. Í tilefni af því er boðað til ráðstefnu í Hörpu, þar sem gott tækifæri gefst til að fræðast um lífhagkerfið og NordBio verkefnin, heyra um alþjóðlega strauma og stefnur á þessu sviði og leggja á ráðin um það hvernig framtíðin eigi að líta út.  

Hvað er lífhagkerfi?
Lífhagkerfi er hagkerfi sem byggir á nýtingu lifandi auðlinda á landi og í sjó þar sem leitast er við að hámarka ávinning án þess að ganga á auðlindirnar. 

Fyrir hverja er ráðstefnan?

Fyrir alla sem hafa áhuga á framtíðinni, hvort sem þeir eru

  •  eða ekki sérfræðingar, 
  • embættismenn eða ekki embættismenn, 
  • stúdentar eða ekki stúdentar, 
  • kjörnir fulltrúar eða ekki kjörnir fulltrúar, 
  • frambjóðendur eða ekki frambjóðendur

Framúrskarandi fyrirlesarar:

  • Christine Lang, formaður þýska lífhagkerfisráðsins
  • Ari Kristinn Jónsson, rektor HR
  • Lene Lange, prófessor í lífefnafræði við Tækniháskólann í Kaupmannahöfn
  • Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræðum við HÍ 
  • Bryan Alexander, framtíðarfræðingur og rithöfundur

Ráðstefnustjórn: Þóra Arnórsdóttir og Stefán Gíslason. 

Ráðstefnan fer fram á ensku og skiptist í gagnvirka fyrirlestra og málstofur.

Þátttökugjald er 20.000 kr. Innifalið: Kaffiveitingar og hádegisverður.

Skráningarfrestur er til 2. október.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum