Hoppa yfir valmynd
6. janúar 2017 Matvælaráðuneytið

Starfshópur endurskoðar lög og reglur um kaup erlendra aðila á bújörðum

Norden.org
Norden.org

Nokkur umræða hefur verið í þjóðfélaginu um árabil varðandi kaup erlendra aðila á bújörðum hér á landi. Dæmi eru um það að sami aðili hafi keypt margar jarðir á stóru svæði án þess að þar sé fyrirhuguð búseta eða að ræktanlegt land sé nýtt. Í ljósi þessa hefur Gunnar Bragi Sveinsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ákveðið að skipa þriggja manna starfshóp til að leggja mat á það hvaða takmarkanir komi helst til greina til að viðhalda ræktanlegu landbúnaðarlandi og búsetu í sveitum landsins.

Hópnum er jafnframt ætlað að skoða þær takmarkanir sem er að finna í löggjöf nágrannalanda Íslands eins og Noregs, Danmörku og Möltu og rúmast innan marka 40. gr. EES-samningsins. Í dönsku jarðalögunum er m.a. eignarhald á landbúnaðarlandi takmarkað og skilyrði sett fyrir kaupum erlendra ríkisborgara. Þá mun hópurinn gera tillögu til ráðherra um nauðsynlegar breytingar á lögum í samræmi við framangreint.

Hópurinn verður skipaður þremur fulltrúum; einum tilnefndum af innanríkisráðherra, einum tilnefndum af Bændasamtökum Íslands en formaður hópsins verður skipaður af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra án tilnefningar. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili tillögum sínum eigi síðar en í júní 2017.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum